Hvers vegna var ekki samábyrgð valin ?
19.10.2009 | 15:05
Hvers vegna var ekki farsæld Íslands ÁSAMT fórnarlömbum Icesave í Hollandi og Bretlandi höfð að leiðarljósi i þessum samningum? Icesave er afrek þriggja ríkisstjórna og ef þegnar þeirra eiga að borga þá eru það gegnar allra þeirra, það er ábyrgð sem við gætum mjög vel sætt okkur við af hverju var sú leið ekki uppi á borðinu?
Kvittað fyrir Icesave | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flott Baltasar, góðar fréttir fyrir okkur öll.
6.10.2009 | 12:37
Útgerð á kunnáttu, hugviti og djörfungi, það er besti grunnur til bjartrar framtíðar á Íslandi. Þar erum við rík og þar getum við staðið saman. Það er mun meira í gangi af góðum virkum hugmyndum heldur en fólk almennt gerir sér grein fyrir. Biðum með ákvarðanir sem hlekkja þjóðina um alla framtíð.
Ráðamenn, kynnið ykkur hvað er í uppbyggingu í landinu, búið atvinnuvegunum vinnuvænt umhverfi, leiðið kraftana saman, þá gerið þið verk ykkar vel.
Takk fyrir úthaldið og dugnaðinn Baltasar.
Stærsta verkefnið til þessa | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
3 Rikisstjornir abyrgar, sama skal yfir alla ganga eftir hofdatolu
1.10.2009 | 10:42
Rikisstjorn Breta, Hollendinga og Islendinga eru sameiginlega abyrgar fyrir ICESAVE.
Ef Islenska rikisstjornin verdur ad krefja skattborgara a Islandi um greidslu aettu somuleidis Holland og Bretland ad gera slikt hid sama. Deilitalan myndi ad sjalfsogdu breyta upphaed greidslu a hvern skattborgara. Thad er rettlatt ad minu mati.
Ekki sanngirni að við borgum, en... | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Hvar er hægt að raunmeta virði starfsemi sendiráðanna?
23.9.2009 | 09:08
Virk sendiráð eru mjög þarfleg fyrir framtíð Íslands í samskiptum við aðrar þjóðir, en eru okkar sendiráð virk? Hvað eru þau raunverulega að gera?
En þar sem Ísland virðist verið rekið algjörlega stefnulaust í atvinnumálum þá er erfitt að ímynda sér hvað sendiráðin eru að standa fyrir og gera.
Hvaða ávinningur er fyrir Ísland sem hægt er að skoða og meta að reka sendiráð í öllum þessum löndum.
Getur ríkisstjórnin gert út vefsíður þar sem hægt er að skoða hvað raunverulega er gert og hvort viðkomandi verkefni geta verið útfærð án sendiráðs í þeirri mynd sem við rekum þau í dag.
Flottræfilsháttur virðist vera okkar meginstefna hvar sem litið er. Vonandi eru raunverðmæti í rekstri sendiráðanna og það væri mikill hagur fyrir ríkisstjórnina að skýra það út fyrir okkur landsmönnum sem erum að fjármagna endalaus ævintýri sem enginn getur sagt um hvernig endar, þar sem ekki einu sinni millikaflarnir eru þekktir.
Sendiráð upp á 1,5 milljarða | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Jarðarför Fagra Íslands
16.9.2009 | 13:13
Allur gangur mála varðandi stóriðju á Íslandi virðist vera að ganga fyrirfram séða leið, verið er að fórna náttúru Íslands fyrir skammsýni, blindu og stórskostlegri heimsku sem við eigum heldur betur eftir að naga á okkur naglrendurnar yfir.
Hvernig má vera að við höldum áfram þessari sjálfsmorðsstefnu þjóðarinnar - sjáið kvikmyndina THE AGE OF STUPIT... Íslendingar slá öll met, í HEIMSKU. Í þessu tilfelli ekki einu sinni eftir höfðatölu,
Við höfum enga afsökun, við erum öll læs og skrifandi.
Kínverjar eru að kaupa upp alla orku sem þeir geta komist yfir um allan heim, við fáum kannski ódýrar nálastungur, það er kannski sárabót fyrir ráðamenn þjóðarinnar.
Stærsti álframleiðandi Kína spáir í Þeistareyki | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Skömm sé okkur öllum, hvar er hollustan og ættjarðarástin?
11.9.2009 | 11:43
Hvernig má vera að við látum viðgangast að eyðileggja stærstu atvinnutækifæri þjóðarinnar með enn einni reddingu sem ótvírætt veldur ómældum skaða á landinu og farsæld þjóðarinnar um alla framtíð.
Hvar eruð þið VG og þið sem segist styðja Fagurt Ísland, framtíð og fararheill? Seljið orkuna, eyðileggið landið sjálft, kremjið þjóðarsálina.. erum við blind?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Krabbamein Íslands
10.9.2009 | 08:42
Þessar afætur sem eru krabbamein þjóðfélagsins eiga að skríða úr skjólum sínum og skila illum feng til uppbyggingar innviða atvinnulífsins. Sjálfviljugir væri besta leiðin en nauðugir er hin leiðin og hún er greið ef vilji er fyrir hendi hjá ráðamönnum þjóðarinnar.
Eignir Íslendinga í skattaskjólum jukust um 40% | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Hagvöxtur er ekki það sama og hagsæld.
16.8.2009 | 20:26
Hagvöxtur stýri greiðslum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Icesave-reiknir á Mbl.is | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Hver svarar Hollensku pressunni fyrir okkar hönd?
22.7.2009 | 08:17
Þrýst á Íslendinga | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |