Hvernig stendur á að bönkunum er fyrirmunað að bera ábyrg?

- bréf frá fyrri hluta 2009 -  en ég er enn sama sinnis en ekki fengið svar eða viðbrögð við þessu bréfi enn -
Hvernig stendur á að bankarnir sem ráðlögðu fólki bera ekki algjörlega ábyrgðina, núna eru þessir bankar ríkiseign svo í raun er lausnin aðeins ákvörðunartaka um hver á að borga.  Ríkið ákveður að kremja fólkið en ekki láta þá aðila sem ráðlögðu og komu fólki á vonarvöl bera neina ábyrgð.  Það verður að setja ALLA bankamenn, ekki síst yfirmennina sem stóðu fyrir öllu þessu, á almenn laun þar til bankarnir hafa leiðrétt sínar misgjörðir.

Ef þeim finnst þeir of góðir fyrir það, þá geta þeir hætt og leitað sér vinnu annars staðar eða með hæfileikum sínum orðið landinu að gagni með stofnun nýrra fyrirtækja sem skila arði í þjóðarbúið.

Leiðréttingin  er 'aðeins' færsla á pappír sem ætti ekki að vera flóknara en eignafærslan, þar sem allt var bara á pappírum, sem rann í vasa ræningjanna sem enn halda áfram sinni iðju.

Það getur ekki verið lagalega rétt að löghlíðið fólk verði að standa við skuldbindingar sem stofnað var til vegna ráðleggingar sérfræðinga bankanna.  Og þegar þeirra ráð hafa þessar skelfilegu afleiðingar þá geti þeir komið og boðið smápeninga í eignir almennings og selt næstu fórnarlömbum.  Þetta er mikið möðkuð mysa sem okkur er boðið uppá.  

 

Ef ráðamenn hugsa í lausnum þá er augljóst að með því að drepa starfþrótt og baráttugleði fólksins í landinu er verið að ræna þjóðina framtíð.  

 

Icesave - Það er hægt að semja við Breta og Hollendinga á allt örðum nótum, með stofnun sameiginlegra uppbyggjandi fyrirtækja byggða á orku sem við eigum (enn) næga en þessar þjóðir skortir.  Þetta/þessi fyrirtæki yrðu þau sem tæku yfir  borganir á þessu galdraverki með bankarnir með leyfi ríkisstjórnarinnar stofnuðu til og sem nú er verið að velta yfir á fólkið í landinu sem kremst undir álaginu.

 

Heimilin eiga ÖLL SEM EITT að hætta að borga og krefjast lausnar. Tekjur til ríkisins eiga að koma frá framkvæmdum og krafti fólksins en ekki frá vanmætti og uppgjöf sem er það eina sem ríkið sér sem tekjulind.  

 

Það má til þess hugsa að ástandið er einmitt vegna þess að engin fyrrverandi ríkisstjórn hefur verið með atvinnumál í fararbroddi og engin stjórnarandstaða heldur... Þessvegna er innistæðan í ´atvinnutækifærum´ svona fátækleg, en hráefnið liggur fyrir, liggur við fótum okkar, landið sjálft. )

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband