Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2009
Hagvöxtur er ekki það sama og hagsæld.
16.8.2009 | 20:26
Hagvexti má líkja við veltu, fyritæki getur haft margfalda veltuaukningu en verið rekið með gífurlegu tapi. Ísland gæti sýnt mjög mikinn hagvöxt hvort sem landið tapar eða hefur tekjuafgang. Orðið hagvöxtur er blekkjandi orð því það virðist þýða bættur hagur, en það getur verið hagvöxtur sem skapast vegna óviðráðanlegra vandamála og verið mjög neikvæður. T.d. í nátturuhamförum sem krefjast mikillar vinnu og þar með vinnuafls við hjálparstarf sem þýðir hagvöxt, en kostar í reynd þjóðarbúið mikla peninga og skilur eftir sig miklar hörmungar. Það er vonandi að sá hagvöxtur sem er miðið vð í Icesave samningnum sé jákvæður hagvöxtur þ.e. sýni tekjuafgang til þess að mæta þeim skuldbindingum sem við erum búin að setja okkur í.
Hagvöxtur stýri greiðslum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Það eru ÞRJÁR RÍKISSTJÓRNIR ábyrgar fyrir hörmungum Icesave, fjármálaeftirlit þessara þriggja ríkisstjórna vissu allar hvað var að gerast og hvers konar hætta var framundan og engin þeirra gerði neitt í málunum.
Þessar þrjár ríkisstjórnir verða ALLAR að bera ábyrgð á afleiðingunum sameiginlega. Það er gjörsamlega óábyrgt að Ísland verði að samþykkja og eða setja sér óyfirstíganlegar skuldbindingar, það kemur engum til góða.
Það er hægt að vinna að sameiginlegum verkefnum þessara þriggja þjóða sem munu skila arði sem gengur beint í afborgun Icesave, Ísland býr yfir orku og landrými, Hollendingar búa yfir fagmennsku í gróðurhúsarækt og ´state of the art´ logistic kerfi til blóma og grænmetis útflutnings.
Við getum boðið uppá margvíslega aðstöðu í heilbrigðisþjónustu og sem sárvantar í Englandi.
Ríkisstjórn Íslands getur látið senda inn hugmyndir um verkefni sem hægt er að setja á fót á Íslandi í samvinnu við Holland og Breta.
Þessi Icesave upphæð sem um er að ræða er sáralítil fyrir þessi bæði lönd en skiptir sköpum fyrir Ísland.
Leysum þessi mál með virðingu og uppbyggingu. Nýtum ríkidæmi Íslands til lausnar. Leggjum vitsmunalega tillögu fram sem ekki er hægt að ganga framhjá, kynnum okkar hlið mála í Evrópu, sýnum öðrum þá tilltsemi og virðingu sem við viljum njóta.
Icesave-reiknir á Mbl.is | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |