Skynsemi er hvorki hægri eða vinstri
4.3.2010 | 18:19
Konur eru alls ekki niðurlægðar með því að setja lagarákvæði um jafnvægi kvenna og karla í stjórnunarstöður, hugsanlega er það einmitt öfugt, það þarf því miður að setja lög til að hið sjálfsagða gangi fram.
Ráðningar í stjórnunarstörf fara því miður í flestum tilfellum ekki eftir hæfni, heldur ráðast að miklu leyti af vinskap og öðrum tengslum, sama fótboltalið o.s.frv.
Þessar ráðningar eru trúlega ekki einu sinni meðvitaðar sem ´klíkuráðningar, en málið er að vinir ráða vini í vinnu, karlmenn sem eru í meirihluta í stjórnunarstöðum ráða skólabræður og vini, oftar en ekki eru umsóknir kvenna ekki einu sinni lesnar, þannig að hæfni til starfs er ekki hafður sem grundvöllur ráðningar.
Sé ráðið eftir hæfni í stjórnunarstöður fyrirtækja er talið að jafnvægi í tölu kvenna og karla í stjórn skili bestum árangri. Besta stjórnin kemur frá sameinuðum krafti beggja kynja, sem er mjög ánægjulegt niðurstaða rannsókna Norðmanna á þessu viðkvæma máli.
Uppá einsdæmi setti fyrrverandi ráðherra í Norgegi setti lög um 50/50 hlutfall kvenna og karla í stjórnir stórra fyrirtækja og voru margir á móti því, en viti menn, ÖLL þau fyrirtæki, viljug sem og þvinguð til þess að fara eftir þessum lögum skila mun betri árangri eftir að jafnvægi varð á milli kynja í stjórnum. Mismunandi aðferðir og sýn bætir hvort annað upp, eðlilegt og frábært, þangað verðum við að fara, þó svo að það verði að styðja við þá framþróun með lögum.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.