Þið standið með báðum fótum á stærsta tekju tækifæri ykkar Suðurnesjamanna, álver eyðileggur það.

Við höfum öll séð óstjórn og vankunnáttu soga þjóðina niður á botn, nú á að grafa hana um alla framtíð.
Þessi sama vankunnátta og óstjórn ráðleggur álver sem atvinnutækifæralausn, þetta sama fólk er engu sterkara og ekki hefur það öðlast neinn aukaskammt af visku síðan það ýtti þjóðinni út á svellið. Ef þyrstum manni er rétt glas með 10dropum af vatni þyggur hann það, en ef hann mætti velja um þessa 10 dropa og glassins sem hann ekki sá en var fullt, hvort myndi hann velja?
Okkur er aðeins boðið uppá Álver önnur tækifæri eru ekki í boði, ef þessir stjórnaraðilar ekki vita um önnur tækifæri og sjá ekki gullið sem Ísland sjálft býr yfir,  ættu þeir að segja af sér og aldrei láta sjá sig aftur sem leiðtogar í þessu landi.
Einn örast vaxandi ferðaiðnaður í heimi er sport,heilsu- og menningar tourismi, við höfum allt sem laðar þennan hóp til Íslands. Við erum AÐEINS 300.000 manns, það er ekkert, við þurfum ekki einu sinni stórt fyrirtæki (á alheimsmælikvarða) til þess að allir hefðu það rúmlega gott.
Þið, Suðurnesjamenn,  búið á REYKJANESINU sem er frá ystu tá og alla leið til Þingvalla og allt um kring eitt áhugaverðasta náttúruundur í Evrópu.  Með því að bygga upp Eldfjallagarðana sem þjóðgarð með ævintýrasundlaugum (í dag er ekkert fyrir barnafólk í ferðamálageiranum) hellaferðir, langar dimmar nætur, bright night hikes,  long weekend hikes, gætuð þið séð öllum Íslendingum fyrir lífeyri. 
Hægt er að byggja upp rannsóknarmiðstöðvar, heilsuhæli, (obesity er að verða stærsta vandamál hins vestræna heims, okkar markhópur í meðferð, þarf ekki einu sinni skurðstofu, aðeins göngustíga) Notalegar afslöppunar stundir sem byggjast á okkar baðstofu arfleið, uppfærða í huggulegt umhverfi.  Gestrisni í algleymingi þar sem við gætum byggt upp alls kyns áhugaverð tækifæri þar sem okkar listafólk fengi að nýta krafta sína í söng og leiklist. 
Við erum ekki byrjuð að nota okkar stærsta atvinnutækifæri sem er Ísland, í augum umheimsins er landið fullt af ævintýrum og dulúð, landið sjálft er upplifun útaf fyrir sig og kostar okkur ekki erlendan gjaldmiðil, við eigum að stefna að verkefnum sem kemur inn með gjaldeyri. 
Ferðaiðnaðurinn byggist á innstreymi á fólki í landið, það þýðir skemmtilegra þjóðlíf, lifandi veitingahús (allt árið) og alls kyns þjónustuiðnaður  og matvælaframleiðsla fengi innspýting sem gæti breytt basli í búsæld.
Hættum þessu væli utan í risafyrirtæki sem gefa ekki sk.. í okkur þegar upp er staðið, ekki gefa jörðina undan fótum okkar allra og barnanna okkar.
Íslendingar geta fært fjöll þegar þeir vilja svo við hafa, gerum það saman.

mbl.is Hundruð slógu skjaldborg um Helguvík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hvílík firra, umhverfis verndar kjaftæði!  Álver menga vissulega eitthvað en langt frá því mikið.  Það er blómlegur ferðamannaiðnaður nú til staðar en samt mikið atvinnuleysi.  Álver í Helguvík sem er engin náttúruperla er flott mál.  VG lýstu yfir að þeir vilja gagnaver uppá flugvöll, það þarf líka að virkja fyrir því.  Línulagnir, byggingar, smá mengun er bara eðlilegur hlutur iðnaðar.  Ekki hefur Álverið í Straumsvík skemmt fyrir okkur, síður en svo.

Baldur (IP-tala skráð) 24.4.2009 kl. 10:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband