Treystum við að núverandi ríkisstjórn geri vitsmunalegan samning við IMF?

Robert Z. Aliber hefur örugglega skýrari sýn inn í þá möguleika sem við eigum heldur en þeir aðilar sem hingað til hafa farið með stjórn landsins.

Ekkert lán er heilbrigðasta og besta stefnan. Það býr óendanlega mikill kraftur í Íslendingum, nú er að kynna tækifæri sem bíða vinnslu, það mun ekki taka langan tíma að koma fjárhaginum á rétt skrið.

350 þúsund manns, þarf ekki mikið til þess að vel um okkur fari.   Hugsum vel, tökum tíma, setjum okkur takmark, skipuleggjum átaki, stöndum saman og vitum hvert við erum að fara. Það er ofgnótt af tækifærum til þess að koma okkur á mjög farsælan hátt á skömmum tíma út úr þessu klúðri.

Fram til þessa hafa stjórnvöld verið heftistefna fyrir framgangi smærri fyrirtækja og tækifæra sem hafa boðist, nýtt fólk um við stýrið á þjóðarskútunni  munu geta stutt farsæla atvinnumálastefnu.  Við erum að treysta SAMA fólki og hefur komið okkur á þennan sleipa klaka til þess að SEMJA fyrir okkar hönd um framtíð landsins.  Þetta sama fólk hefur aldrei séð hvað landið hefur uppá að bjóða sem atvinnutækifæri sem skapa áhugaverða vinnu fyrir alla landsmenn og rúmlega það.  

 


mbl.is Gætum hæglega sleppt IMF-láni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband