Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2009

Þið standið með báðum fótum á stærsta tekju tækifæri ykkar Suðurnesjamanna, álver eyðileggur það.

Við höfum öll séð óstjórn og vankunnáttu soga þjóðina niður á botn, nú á að grafa hana um alla framtíð.
Þessi sama vankunnátta og óstjórn ráðleggur álver sem atvinnutækifæralausn, þetta sama fólk er engu sterkara og ekki hefur það öðlast neinn aukaskammt af visku síðan það ýtti þjóðinni út á svellið. Ef þyrstum manni er rétt glas með 10dropum af vatni þyggur hann það, en ef hann mætti velja um þessa 10 dropa og glassins sem hann ekki sá en var fullt, hvort myndi hann velja?
Okkur er aðeins boðið uppá Álver önnur tækifæri eru ekki í boði, ef þessir stjórnaraðilar ekki vita um önnur tækifæri og sjá ekki gullið sem Ísland sjálft býr yfir,  ættu þeir að segja af sér og aldrei láta sjá sig aftur sem leiðtogar í þessu landi.
Einn örast vaxandi ferðaiðnaður í heimi er sport,heilsu- og menningar tourismi, við höfum allt sem laðar þennan hóp til Íslands. Við erum AÐEINS 300.000 manns, það er ekkert, við þurfum ekki einu sinni stórt fyrirtæki (á alheimsmælikvarða) til þess að allir hefðu það rúmlega gott.
Þið, Suðurnesjamenn,  búið á REYKJANESINU sem er frá ystu tá og alla leið til Þingvalla og allt um kring eitt áhugaverðasta náttúruundur í Evrópu.  Með því að bygga upp Eldfjallagarðana sem þjóðgarð með ævintýrasundlaugum (í dag er ekkert fyrir barnafólk í ferðamálageiranum) hellaferðir, langar dimmar nætur, bright night hikes,  long weekend hikes, gætuð þið séð öllum Íslendingum fyrir lífeyri. 
Hægt er að byggja upp rannsóknarmiðstöðvar, heilsuhæli, (obesity er að verða stærsta vandamál hins vestræna heims, okkar markhópur í meðferð, þarf ekki einu sinni skurðstofu, aðeins göngustíga) Notalegar afslöppunar stundir sem byggjast á okkar baðstofu arfleið, uppfærða í huggulegt umhverfi.  Gestrisni í algleymingi þar sem við gætum byggt upp alls kyns áhugaverð tækifæri þar sem okkar listafólk fengi að nýta krafta sína í söng og leiklist. 
Við erum ekki byrjuð að nota okkar stærsta atvinnutækifæri sem er Ísland, í augum umheimsins er landið fullt af ævintýrum og dulúð, landið sjálft er upplifun útaf fyrir sig og kostar okkur ekki erlendan gjaldmiðil, við eigum að stefna að verkefnum sem kemur inn með gjaldeyri. 
Ferðaiðnaðurinn byggist á innstreymi á fólki í landið, það þýðir skemmtilegra þjóðlíf, lifandi veitingahús (allt árið) og alls kyns þjónustuiðnaður  og matvælaframleiðsla fengi innspýting sem gæti breytt basli í búsæld.
Hættum þessu væli utan í risafyrirtæki sem gefa ekki sk.. í okkur þegar upp er staðið, ekki gefa jörðina undan fótum okkar allra og barnanna okkar.
Íslendingar geta fært fjöll þegar þeir vilja svo við hafa, gerum það saman.

mbl.is Hundruð slógu skjaldborg um Helguvík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Framtíð landsins er ábyrgð landsmanna, ábyrgð krefst þekkingar, hvað er ESB fyrir okkur?

ESB er mun flóknara dæmi en svo að við getum bara sótt um og allt verður FLOTT og blessað, og til þess að þjóðin geti tekið heiðarlega, vitsmunalega afstöðu þarf að hafa námskeið og kynningar á hvað ESB er, hvaða áhættur við tökum og hvað er okkar hagur.
Blinda á atvinnutækfærin sem blasa við í þjóðfélaginu er fötlun sem ætti að vera næg ástæða fyrir þann sem af henni þjást að halda sig frá leiðtogastörfum.  Hvernig má vera að Samfylkingin leiði ekki landið sitt til dáða með úrvinnslu á eigin gæðum til eigin framdráttar.
Það er erfitt að hugsa um Samfylkinguna sem einn flokk þar sem sterkustu forsvarsmenn Íslenskrar náttúru fylkja þar liði á sama tíma og Fagra Íslandi hefur verið fórnað á altari einhverskonar reddingar, eða græðgi með Helguvíkur álveri.  
Ísland er eyland, en við erum partur af hinum stóra heimi, álvinnsla á Íslandi er partur af hringrás, hér er einungis smápartur hennar en við erum ábyrg á öllum pakkanum. Ákvörðun um að reisa álver í Helguvík á eftir að verða okkur dýrara en bankahrunið bæði peningalega sem og mannorðslega.
Því það er einskær dónaskapur við þjóðina að bera því við að Helguvíkurálver sé til bjargar atvinnulífsins. 
Það er spurning um hverju er fórnað fyrir hvað, Reykjanesskaginn, sem og allt Ísland,  býr yfir stórkostlegum tækifærum í ferðaiðnaðinum, stórkostlegt rannsóknarefni fyrir jarðfræðinga, frábærar leiðir til gönguferða, nokkur Blá Lagoon í viðbót. Reykjanesið eitt myndi geta veita hundruðum manns vinnu bæði beint og óbeint.  Uppbygging á þeim tækifærum sem Reykjanesið hefur yfir að búa kostar smápeninga miðað við það sem álverið á eftir að kosta okkur, og mun skila ómengaðri, hraðari, stoltari, skemmtilegri og skilvirkari tekjum í þjóðarbúið um alla framtíð.   
Hvort sem ESB verður framtíð landsins eða ekki, þarf núna, (hefði þurft fyrir langa longu) að þinga um atvinnumálastefnu landsins þannig að  landsmenn ákveði stefnuna, t.d. hvar virkjanir verða byggðar og í hvað þær nýtast.   Stefna í atvinnumálum skylid innsigla með lögum sem ekki breytast við stjórnarskipti, en ef um stefnubreytingu yrði að ræða færi það undir þjóðaratkvæði.  Þar á eftir koma sveitarfélögin og nýti sér þá möguleika sem verða til í eigin héraði. Með sameiginlegri landsstefnu koma sameiginleg markmið og samvinna í sömu átt í stað endalausrar togstreitu um hver á hvað og fyrir hvern, sbr. Bitruvirkjunar tillögur (guð forði) 
Ég hræðist Samfylkinguna vegna þess að hún er ekki SAM-fylking, segir eitt og gerir annað,
Sjálfstæðisflokkurinn virðist ekki vera skipaður heilsteyptum Sjálfstæðismönn, eins og þeir hafa sjálfir sagt, stefnan er fín en stýrimennirnir ekki.
VG eru heiðarlegir og stefnufastir, en þeir hafa ekki beytt sér fyrir grundvallarbreytingu sem nauðsynleg er til þess að byggja upp lýðræði í landinu, þ.e. ný stjórnarskrá.
Þjóðin verður að geta búið við lýðræðislegt öryggi, við verðum að fá nýja vandaða stjórnarskrá,
BORGARAHREYFINGIN sem einungis er skipuð fólki sem berst fyrir nýrri stjórnarskrá mun gera allt sem í þeirra valdi stendur til þess að lýðræðið taki við stjórn landsins.  Með lýðræðinu getum við sameiginlega tekið ákvarðanir varðandi framtíð landsins, atvinnumál, ál eða kál, ESB, evru, krónu, dollara eða yen. 
Heiðarleiki verður að vera grunnur framtíðar landsins, þá fyrst getum við flutt fjöll og leyst úr læðingi kraftinn sem býr í okkur, sameiginlegan kraft fyrir sameiginlega framtíð.

mbl.is Trúi ekki að Samfylkingin láti stranda á ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allir í frí í sumar, í haust, í vetur.. hver og einn getur

vacances2009

Helsta atvinnutækifæris tillaga Samfylkingar til Íslands, að pissa uppí vindinn?

Að vinna að aukinni mengun í heiminum er eins og að pissa uppí vindinn, það fýkur allt beint framan í okkur aftur, mun kaldara en það sem við létum frá okkur.

Viljum við fá far með mulimilljónafyrirtækjum þar sem íslensk stjórnvöld hafa ekkert atkvæði og sem getur hent okkur, sem þjóð, út a fullri ferð hvar sem er.  Þorum við að byggja framtíðina upp á alþjóða fyrirtækjum sem einungis eru rekin i eigin hagnaðarskyni án nokkurs tillits til nátturu og mannlífs. íslendingar  fá  engu ráðið hvernig  eignaskipti á viðkomandi fyrirtækjum kemur til með að þróast. Í dag er Alcoa eign hins alræmda RIO TINTO (Kandískt fyrirtæki)  á morgun hgusanlega í eigu Kínverja, eða Rússa,  hver veit? Íslensk stjórnvöld verða örugglega ekki með í ráðum varðandi framtíðarrekstur þessara fyrirtækja, hvorki hvad varðar vinnuafl eða samninga.  Ísland er ekki miðja alheimsins þrátt fyrir að okkur finnist það flestum

Með því að selja/gefa orkuna til erlendra risafyrirtækja erum við að stofna sjálfstæði landsins, í bráða hættu,

Sjálfstæði Íslands­?   Það var mikið og hart barist við að fyrir sjálfstæði Íslands, og okkur finnst í dag það vera sjálfsagður hlutur. En það er með það eins og skíðabrekkurnar (fyrir lyftur)  lengi upp og fljótur niður,  ef við verðum undir í baráttu við þessi alþjóðafyrirtæki sem við höfum fagnandi gefið orku landins myndi það varla ná athygli heimspressunnar, nema hugsanlega í einn dag.

´Be aware if you dare´ sjáið DRAUMALANDIÐ fyrir kosningar

 


Hvað er í gangi, hver er skýring lögreglu

Það er nauðsynlegt að skýring frá lögreglu á þeirra viðbjóðslegu framkomu og vanvirðingu lögvalds í landinu gagnvart þjóðinni allri.  Það er varla nokkur maður sem getur séð ástæðu fyrir þessari hrottalegu aðför. 
Það er mikilvægt að vita hvers konar mannskapur það er sem skilur eftir sig svona slæmt ör í þjóðarsálinni.
Hver ´á´þetta hús? Er eignarhald viðkomandi tilkomið á eðlilegan hátt eða er þetta hugsanleg eigna tilfæring í svindlsúpunni? Það er einstaklega vond lykt af þessu máli.  Það er komið nóg af andstyggð upp á yfirborðið,  þessi verknaður framinn af lögreglunni okkar sem við treystum fyrir öryggi okkar og barnanna okkar er eins og spark í magann.
Hver gaf lögreglu fyrirmæli um þessa skæruliða framkomu eða eru þetta ´eðlileg´ vinnubrögð, viðbrögð lærð í sérsveitardeildum lögreglunnar og er þetta framkoma sem við eigum eftir að sjá meira af og venjast í framtíðinni.

mbl.is Fékk hland fyrir hjartað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Herðum hengingarólina - Eyðum meiru og meiru, meiru í dag en í gær

>Furðulegt í ljósi þess vanda sem blasir við í efnahagskerfum allra þjóða að >Amerika, og allar ESB þjóðirnar, komi með sömu uppskrift til lausnar vandans. >Eyða meiru og meiru, meiru í dag en í gær. Upphaf alls er að mínu mati >offramleiðsla í Asíu vegna kröfu Vestursins um ódýrt ódýrt,án nokkurs tillits >til þeirra sem vinnuna leggja fram. Kröfur okkar um afnám barnaþrælkunar er á >sama hátt byggð á algjörri eigingirni og frekju, þar sem við viljum afnema >barnaþrælkun en gerum ekkert í að borga foreldrum næg laun til framfærslu >heimilanna. Samhliða neyslufrekjunni höfum við afsalað okkur þekkingu sem er >þungaviktin í sjálfbærni hverrar þjóðar.  >Kapitalismi án tillits til eins eða neins nema gróða einstakra fyrirtækja er >stórhættulegur móður náttúru og barna hennar sem eru dýrin sem hana ganga, að >okkur, mannfólkinu meðtöldu. >Það er með ólíkindum að sá þjóðfélagshópur sem ber hag náttúrunnar fyrir >brjósti skuli alltaf vera bendlaður við vinstri stefnu, það fer lítið fyrir >tekjuafgangi ef við höfum ekki jörð til að ganga á. >Hnattvæðing hefur alltaf verið partur af lífi mannfólks á jörðunni, en >hnattvæðíng án gagnkvæms skilnings á þörfum viðkomandi þjóða er banabein >núverandi kerfis. >Minna er Meira, þekking á afkomuleiðum þeirra þjóða sem ætla sér að vinna

>saman er undirstaða heilbrigðar hnattvæðingar.


USA Hrollvekja samtímans - Pearl Harbour - Nine Eleven

Eru til takmörk?

Spilling í ESB? kemur kunnuglega fyrir, aðlögun að ESB ætti að verða okkur auðveld.

 

Disappointed anti-fraud MEP to quit in June

Dutch member of the European parliament Paul van Buitenen will stand down at the next European elections in June because of the EU body's reluctance to seriously tackle fraud. He told tv programme Re­porter on Sunday that he was ‘very disap­pointed' that no action had been taken on the cases of fraud he had brought to light.

Van Buitenen was an EU civil servant when in 1999 he blew the whistle on fraud and irregularities within the EU com­mission. The commission subsequently resigned en masse. He became a Euro MP in 2004 with his party Europa Transpar­ant and continued his campaign to have the EU cleaned up, telling tv programme Buitenhof in 2004 that his whistleblowing had made him ‘a pariah'. Last March, Van Buitenen published a short summary of a major report into European MP's salary and expense abuses, which the parlia­ment itself voted to keep secret. A British campaign group published the full report this weekend. It reveals that European MPs can earn up €1m during their five-year term from making savings on their expenses.

 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband