Fjoreggid brotid? fólk á flótta undan efnahaglegu ofbeldi

Icesave mun ekki setja landid á hlidina-ekkert B-plan naudsynlegt segja landshofdingjarnir, skömm sé ykkur.   Icesave er hluti af heildarpakkanum en getur ekki sett landið á hliðina þar sem það er rammfast á botninum og sekkur bara dýpra.
IMF og ESB reka landid engar áhyggjur, bara borga. 
HVAR ER HEILDAR EFNAHAGS MYNDIN? Himinháir vextir, hækkaðir skattar, niðurskurður í þjónustugreinum - allt í sömu átt efnahagslegt ofbeldi.  Hvar eru lausnirnar? Hvar er uppbygging atvinnuvega?  Hvar er hvatningarátakið?  Hvar eru miskabætur fyrir almenning í landinu?
mbl.i30.06.09
Lánshæfismat Landsvirkjunar er fallið í ruslflokk (junk bonds).  Landsvirkjun skuldar um 400 milljarða króna og þarf að endurfjármagna 25 milljarða fyrir lok næsta árs. Með lækkuðu lánshæfismati Landsvirkjunar hefur skapast aukin hætta á að lánshæfismat ríkissjóðs falli í sama flokk, sem myndi marka opinbert gjaldþrot ríkissjóð og íslensku þjóðarinnar.

  Það fór lítið fyrir helstu frétt dagsins á fréttastofum landsins, en mest var hún áberandi í ræðustól Alþingis þar sem Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins gerði lækkað lánshæfismat Landsvirkjunar að umtalsefni. Samkvæmt lánshæfismati Standaard & Poor lækkar lánshæfi á erlendum skuldbindingum úr BBB mínus í BB, en lánshæfi á innlendum skuldbindingum fellur úr BBB plús niður BBB mínus.

Hér með er fjöregg þjóðarinnar fallið í svokallaðan rusl flokk (junk bonds) og er líklegt að fallið muni hafa afdrifaríkar afleiðingar fyrir íslenska ríkið og heimili í landinu. Sigmundur Davíð og Pétur Blöndal hafa varað við þessu falli, og tengja það ríkisábyrgðinni á Icesave-skuldbindingunum. Í morgunþætti Bylgjunnar 11. júní varaði Pétur við alvarlegum afleiðingum þess að lánshæfismat Landsvirkjunar félli í ruslflokk, því hugsanlega yrðu þá lán Landsvirkjunar gjaldfelld og skuldabréf seld.


mbl.is AGS vill ekki stýrivaxtalækkun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Takk fyrir síðast Gerður, það eru reyndar fyrir mörgum árum.

 Hvernig hafa pólitíkusar sem eru við eftirlaunaaldurinn leyfi til að skuldsetja börnin okkar og ófædda Íslendinga?

Sigurður Þórðarson, 2.7.2009 kl. 09:12

2 Smámynd: Axel Jóhann Axelsson

Það litla sem sett var í "Stöðugleikasáttmálann" um atvinnuuppbyggingu var að halda áfram með álverin í Straumsvík og Helguvík, og laða hingað millistóra orkukaupendur.

Með þessu lánshæfismati Landsvirkjunar, er vandséð hvernig á að útvega orkuna.

Úrræðin í atvinnumálunum voru ekki mikið fleiri, svo það er eins gott að fara að reikna með ennþá meira atvinnuleysi, en nú er og þó hefði manni þótt nóg um nú þegar.

Axel Jóhann Axelsson, 2.7.2009 kl. 09:41

3 Smámynd: Gerður Pálma

Málið er að það eru augljós og minna augljós atvinnutækifæri um allt land, en okkur hefur lánast í áratugi að vera með skynlausar ríkisstjórnir sem á einhvern furðulegan hátt hafa aldrei komið auga á gæði þessa lands og kraftinn í mannskapnum.
Það getur enginn eldað góða súpu ef ´hráefnið´ er ekki sett í pottinn.
Á Íslandi hefur ekkert (allavega ekkert sem ég veit um) verið gert til þess að laða að fjölskyldufólk í ferðaiðnaðinn. Ævintýrasundlaugar, sem hvorutvegga yrðu stórkostleg upplifun fyrir okkar eigin upplifun sem og laða að gesti til landsins.  Dekurstaðir, chill out in Iceland, ekkert...
Það er frábært að það vantar svo mikið, því þar liggja tækifærin.  Það er samt búið að gera heilmikið, nú er að tengja það allt saman, og hafa gaman.  Þessi lánastefnuredding er harakiri, hægfara dauði þjóðar.

Gerður Pálma, 2.7.2009 kl. 22:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband