Helsta atvinnutækifæris tillaga Samfylkingar til Íslands, að pissa uppí vindinn?

Að vinna að aukinni mengun í heiminum er eins og að pissa uppí vindinn, það fýkur allt beint framan í okkur aftur, mun kaldara en það sem við létum frá okkur.

Viljum við fá far með mulimilljónafyrirtækjum þar sem íslensk stjórnvöld hafa ekkert atkvæði og sem getur hent okkur, sem þjóð, út a fullri ferð hvar sem er.  Þorum við að byggja framtíðina upp á alþjóða fyrirtækjum sem einungis eru rekin i eigin hagnaðarskyni án nokkurs tillits til nátturu og mannlífs. íslendingar  fá  engu ráðið hvernig  eignaskipti á viðkomandi fyrirtækjum kemur til með að þróast. Í dag er Alcoa eign hins alræmda RIO TINTO (Kandískt fyrirtæki)  á morgun hgusanlega í eigu Kínverja, eða Rússa,  hver veit? Íslensk stjórnvöld verða örugglega ekki með í ráðum varðandi framtíðarrekstur þessara fyrirtækja, hvorki hvad varðar vinnuafl eða samninga.  Ísland er ekki miðja alheimsins þrátt fyrir að okkur finnist það flestum

Með því að selja/gefa orkuna til erlendra risafyrirtækja erum við að stofna sjálfstæði landsins, í bráða hættu,

Sjálfstæði Íslands­?   Það var mikið og hart barist við að fyrir sjálfstæði Íslands, og okkur finnst í dag það vera sjálfsagður hlutur. En það er með það eins og skíðabrekkurnar (fyrir lyftur)  lengi upp og fljótur niður,  ef við verðum undir í baráttu við þessi alþjóðafyrirtæki sem við höfum fagnandi gefið orku landins myndi það varla ná athygli heimspressunnar, nema hugsanlega í einn dag.

´Be aware if you dare´ sjáið DRAUMALANDIÐ fyrir kosningar

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Hreiðar

Tek undir þetta síðasta Gerður, allir ættu endilega að sjá Draumalandið sem fyrst og helst fyrir kosningar. Það er hressandi að sjá svona grímulausa einhliða áróðursmynd -- sem auk þess er víða fallega tekin. Ég þykist vita að einhverjir dýravinir muni taka undir grátinn með mér við að fylgjast með meðferðinni á hreindýrunum þremur undir lokin. Ætli þau hafi á endanum sprungið úr mæði og skelfingu?

Sigurður Hreiðar, 20.4.2009 kl. 13:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband