Hvað er í gangi, hver er skýring lögreglu

Það er nauðsynlegt að skýring frá lögreglu á þeirra viðbjóðslegu framkomu og vanvirðingu lögvalds í landinu gagnvart þjóðinni allri.  Það er varla nokkur maður sem getur séð ástæðu fyrir þessari hrottalegu aðför. 
Það er mikilvægt að vita hvers konar mannskapur það er sem skilur eftir sig svona slæmt ör í þjóðarsálinni.
Hver ´á´þetta hús? Er eignarhald viðkomandi tilkomið á eðlilegan hátt eða er þetta hugsanleg eigna tilfæring í svindlsúpunni? Það er einstaklega vond lykt af þessu máli.  Það er komið nóg af andstyggð upp á yfirborðið,  þessi verknaður framinn af lögreglunni okkar sem við treystum fyrir öryggi okkar og barnanna okkar er eins og spark í magann.
Hver gaf lögreglu fyrirmæli um þessa skæruliða framkomu eða eru þetta ´eðlileg´ vinnubrögð, viðbrögð lærð í sérsveitardeildum lögreglunnar og er þetta framkoma sem við eigum eftir að sjá meira af og venjast í framtíðinni.

mbl.is Fékk hland fyrir hjartað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ætli ríkislögreglustjóri hafi ekki mest um þetta að segja. Þetta er náttúrulega yfirgengilegt rugl og valdníðsla.

Viðar Ingvason (IP-tala skráð) 20.4.2009 kl. 21:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband